Námskeið
Kjarni Vefnámskeið: Ýmsar aðgerðir í launum
Á námskeiðinu verður farið yfir ýmsar aðgerðir í launahluta Kjarna.
Hvar er námskeiðið haldið?
Vefnámskeið á Teams
Hvað er innifalið?
Dagsetning: Fimmtudagur 22.maí 2025 kl. 13:00-15:00
Staður: Teams
Verð: 19.000 kr
Leiðbeinandi: Launaráðgjafi Kjarna
Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi:
Á námskeiðinu verður farið í ýmsar aðgerðir í launahluta kerfisins, m.a. leiðréttingu launa, uppgjör starfsmanna við starfslok og kjarasamningshækkanir.
Farið verður yfir ofantalin atriði og sýnd dæmi. Engar æfingar eru gerðar á námskeiðinu.
Fundarboð með hlekk á námskeiðið verður sent í tölvupósti við skráningu.
Skráningu á námskeiðið lýkur þriðjudaginn 20.maí.
Athugið að námskeiðið gæti fallið niður ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Skráningarskilmálar
Ef þú þarft að afskrá þig af námskeiðinu þá þarf að gera það minnst 24 tímum áður en námskeið hefst, annars þarf að greiða fyrir námsekiðið að fullu.
Afskráning verður að berast með tölvupósti á netfangið ardisb@origo.is. Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem upphaflega var skráður.
Origo áskilur sér rétt til að fella námskeiðið niður eða auglýsa aðra tímasetningu ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að sérpanta fyrir einstök fyrirtæki og stofnanir.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um sérsniðið námskeið skal senda tölvupóst á service@origo.is