Hæfnisskráning
Mat og skráning á hæfni sem lykill að þjálfun og auknu öryggi
Með 630 starfsmenn, tugi hæfniskrafna og strangar öryggiskröfur var nauðsynlegt fyrir Norðurál að finna leið til að halda utan um þjálfun og hæfni.

Þessi grein byggir á erindi sem Hulda Ólafsdóttir Klein, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Norðuráls, og Magnús Smári Snorrason, fræðslustjóri Norðuráls, fluttu á notendaráðstefnu Kjarna 2025.
Framleiðslufyrirtæki með háar öryggiskröfur
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins og framleiðir yfir 300.000 tonn af áli árlega. Starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og samanstendur af iðnaðarmönnum, stjórnendum, sérfræðingum ásamt öðrum sérhæfðum störfum. Með 630 starfsmenn eru öryggis- og gæðamál í algjörum forgangi.
Kröfur um staðfestingu á hæfni
Sem fyrirtæki í stóriðju þarf Norðurál að fylgja ströngum stöðlum varðandi öryggi, gæði og umhverfismál. Þetta felur í sér að hafa nákvæma og örugga yfirsýn yfir hæfni og þjálfun alls starfsfólks.
Það þarf að vera hægt að taka út hvern einasta starfsmann og staðfesta hæfni hans.
Magnús Smári Snorrason
•
Fræðslustjóri hjá Norðuráli
"Við erum fyrst og fremst að hugsa um öryggi og gæðamál hjá okkur í þessu samhengi," segir Magnús Smári Snorrason, fræðslustjóri hjá Norðuráli. "Við erum að fylgja eftir mjög stífum stöðlum og það eru miklar kröfur gerðar til okkar þegar kemur að hæfnisskráningum."
Norðurál fylgir stöðlum eins og:
ISO 9001: Gæðastjórnunarkerfi
ISO 14001: Umhverfisstjórnunarkerfi
ISO 45001: Heilbrigðis- og öryggisstjórnunarkerfi
ÍST 85: Jafnlaunastaðall
ASI staðli sem er sértækur fyrir áliðnaðinn

Áskoranir í hæfnisskráningu fyrir stórt fyrirtæki
Áður en Norðurál tók upp Kjarna höfðu þau notað ýmsar aðferðir til að halda utan um hæfnisskráningar:
Excel skjöl
Heimasmíðuð kerfi
H-laun
SAP launa- og mannauðskerfi
Helstu áskoranir Norðuráls í hæfnisskráningu voru:
Fjöldi starfsfólks og hæfnistegunda: Fylgjast þarf með hæfni yfir 600 starfsmanna og hver starfsmaður getur haft tugi hæfnistegunda.
Skortur á yfirsýn fyrir vaktstjóra: Hver vaktstjóri getur haft umsjón með mörgum starfsmönnum og þarf að vita nákvæmlega hver hefur fengið þjálfun í hverju verki.
Sumarstarfsfólk: Á sumrin bætist við mikið af sumarstarfsfólki sem öll þurfa viðeigandi þjálfun áður en þau hefja störf.
Öryggissjónarmið: "Við erum ekki að setja starfsmann í verk sem hann er ekki búinn að fá þjálfun í. Það er bara stórhættulegt," útskýrir Hulda Ólafsdóttir Klein, deildarstjóri upplýsingatæknideildar.
Úttekt: Fyrirtækið þarf að geta sýnt úttektaraðilum fram á að allt starfsfólk hafi fengið viðeigandi þjálfun.
Samstarf við Origo um þróun á nýrri lausn
Þegar fyrirtækið tók upp Kjarna í desember 2023 skapaðist tækifæri til að endurskipuleggja hæfnisskráninguna.
"Kjarni er auðvitað mannauðskerfi, þar eru allar upplýsingar um starfsfólkið okkar. Þannig á þetta að vera 'single source of truth'. Allt sem tengist starfsmanninum á að vera þarna," segir Hulda. "Vissulega var hægt að skrá hæfni og námskeið starfsmanna í kerfið, en okkur skorti sýn fyrir vaktstjórana okkar."
Norðurál vann með Origo að þróun á nýrri virkni í Kjarna til að mæta áskorunum sínum. Óskir Norðuráls voru að fá:
Góða yfirsýn fyrir vaktstjóra og úttektaraðila.
Einfalda og fljótlega skráningu.
Möguleika á að skrá marga starfsmenn í einu.
Ný samanburðarvirkni í Kjarna
Lausnin sem þróuð var er samanburðarvirkni í Kjarna sem býður upp á betri yfirsýn og skilvirkari skráningu á hæfni starfsmanna.
Fyrir vaktstjórana út á gólfi sem eru að fylgjast með öllu sínu fólki er þetta bara "game changer". Miklu betra en það var áður.
Hulda Ólafsdóttir Klein
•
Deildarstjóri upplýsingatæknideildar hjá Norðuráli
Vaktstjórar geta nú haft yfirsýn yfir allt sitt starfsfólk og hæfni þess með litakóðuðu yfirliti. Hægt er að:
Uppfæra hæfni með örfáum smellum.
Sía hæfnisflokka eftir þörfum.
Sjá nákvæmar upplýsingar um hverja hæfni á einfaldan hátt.
Ávinningur af nýju lausninni
Innleiðing Kjarna hefur skilað Norðuráli margvíslegum ávinningi.
Við erum núna í þeirri stöðu að við sjáum miklu betra yfirlit og við erum gríðarlega ánægð með það, og ég tel að þetta auki öryggi hjá okkur og hjálpi vaktstjórunum við sína vinnu.
Hulda Ólafsdóttir Klein
•
Deildarstjóri upplýsingatæknideildar hjá Norðuráli
Bætt yfirsýn: Vaktstjórar fá skýra mynd af hæfnisstöðu starfsmanna sinna á einfaldan og myndrænan hátt.
Aukið öryggi: Auðvelt er að tryggja að ekkert starfsfólk sé sett í verk sem það hefur ekki fengið þjálfun fyrir.
Tímasparnaður: Mun minni handavinna við skráningar.
Einfaldari úttektir: Auðveldara er að sýna úttektaraðilum fram á að allt sé í lagi þegar kemur að hæfni og þjálfun starfsfólks.
Betri ákvörðunartaka: Auðveldara er að sjá hvar þörf er á þjálfun.
Hvað er framundan?
Norðurál er enn í góðu samstarfi við Origo um frekari þróun á virkninni.
"Það sem okkur vantar enn er fjöldaskráning," segir Hulda en bætir við að hún hafi trú á að sú virkni komi innan tíðar.
Þetta snýst allt um samvinnu og að tala saman og finna bestu lausnirnar. Staðan er sú að ef við fáum lausn hjá okkur, þá kemur lausn fyrir alla sem eru að nota þetta kerfi, sem mér finnst alveg frábært.
Hulda Ólafsdóttir Klein
•
Deildarstjóri upplýsingatæknideildar hjá Norðuráli
Vilt þú vita meira um hæfnisskráningu í Kjarna?
