Gagnadrifin ákvarðanataka

Ákvarðanir byggðar á gögnum: Hvað er viðskiptagreind Kjarna?

Hvernig nýtir þitt fyrirtæki gögn til að taka betri ákvarðanir? Fyrirtæki sem vinna markvisst með gögn eru í góðri stöðu til að taka betri ákvarðanir, bregðast hraðar við og ná meiri árangri. Með viðskiptagreind Kjarna eru öll helstu mannauðs- og launagögn aðgengileg á einum stað á skýru og myndrænu formi.

28. mars 2025

Viðskiptagreind Kjarna er öflug lausn fyrir fyrirtæki sem vilja nýta mannauðs- og launagögn á hagkvæman og skilvirkan hátt. Með því að sameina áreiðanleg gögn úr Kjarna við öflugt greiningartól geta fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum öðlast dýpri innsýn í mannauðsmálin, sparað tíma og tekið upplýstari ákvarðanir.

Hvernig virkar viðskiptagreind Kjarna?

Viðskiptagreind Kjarna tengir gögn úr Kjarna við Microsoft Power BI, leiðandi lausn í gagnagreiningu, og gerir fyrirtækjum kleift að fá heildstæða yfirsýn yfir lykilmælikvarða í rauntíma.

  • Sjálfvirk gagnasöfnun: Engin þörf á handvirkri úrvinnslu gagna.

  • Myndrænt mælaborð: Skýr yfirsýn yfir allar lykilupplýsingar á einum stað.

  • Rauntímagögn: Tryggir að allar ákvarðanir séu byggðar á nýjustu upplýsingum.

  • Sveigjanleiki: Hægt er að nýta tilbúnar skýrslur eða útbúa eigin skýrslur.

Afhverju að nota viðskiptagreind Kjarna?

Með viðskiptagreind Kjarna geta fyrirtæki:

  • Tekið upplýstari ákvarðanir: Að móta stefnu út frá áreiðanlegum gögnum fremur en tilfinningu eða ágiskunum skilar betri árangri.

  • Sparað tíma: Sjálfvirk úrvinnsla gagna dregur úr tíma sem fer í handvirkar skýrslugerðir.

  • Aukið skilvirkni: Með betri yfirsýn er auðveldara að forgangsraða og taka stefnumiðaðar ákvarðanir.

  • Dregið úr áhættu: Að sjá gögn á myndrænu formi getur hjálpað til við að bera kennsl á mynstur og óreglu sem gæti haft áhrif á rekstur.

Fyrir hverja er viðskiptagreind Kjarna?

Viðskiptagreind Kjarna hentar öllum fyrirtækjum, stórum sem smáum, sem vilja:

  • Betri yfirsýn yfir mannauðs- og launamál.

  • Minnka handvirka vinnu við gagnaúrvinnslu.

  • Tryggja að ákvarðanir séu teknar á grundvelli traustra gagna.

  • Auka skilvirkni í mannauðsstjórnun með rauntímagögnum.

Breyttu gögnum í aðgerðir

Viðskiptagreind Kjarna veitir stjórnendum og mannauðsteymum skýra yfirsýn yfir lykilmælikvarða og tryggir að ákvarðanir séu byggðar á traustum gögnum. Með sjálfvirkri gagnasöfnun, myndrænum mælaborðum og rauntímaupplýsingum færð þú dýrmæta innsýn í mannauðinn. Þannig etur þú brugðist hratt við breytingum og bætt ákvarðanatöku.

Hvort sem þú vilt nýta tilbúnar skýrslur eða búa til þínar eigin, þá býður viðskiptagreind Kjarna upp á sveigjanlega lausn sem hentar öllum fyrirtækjum.

Viðskiptagreind Kjarna

Vilt þú vita meira um viðskiptagreind Kjarna?

Taktu upplýstari ákvarðanir um mannauðs- og launamálin með viðskiptagreind Kjarna. Fáðu aðgang að lifandi mælaborði með rauntímagögnum um mannauðs og launamálin þín þar sem þú getur rýnt í fjölda greininga.

Hafa samband

Opið virka daga frá kl. 9.00 – 16.00

Póstlisti Kjarna

Fáðu sendar upplýsingar um námskeið, viðburði og nýjungar í Kjarna.

Copyright 2025 @ Kjarni by Origo Group. All rights reserved.