Námskeið
Kjarni Vefnámskeið: Fyrirtækjalistinn
Á námskeiðinu verður farið yfir þá möguleika sem fyrirtækjalistinn í Kjarna býður uppá
Hvar er námskeiðið haldið?
Vefnámskeið á Teams
Hvað er innifalið?
Dagur: Þriðjudagur 7.október kl. 13:00-15:00
Staður: Teams
Verð: 19.000 kr
Leiðbeinandi: Launaráðgjafi Kjarna
Fyrir hverja: Notendur í Kjarna sem vilja bæta þekkingu sína á fyrirtækjalistanum og afstemmingum
Lýsing:
Á námskeiðinu verður farið yfir þá möguleika sem fyrirtækjalistinn býður uppá, en hann er einn þægilegasti listinn til að taka út gögn og stemma sig af.
Fyrirtækjalistinn er mjög sveigjanlegur listi og býður upp á óteljandi möguleika á framsetningu gagna. Hægt er að keyra upp einn lista og birta hann á marga mismunandi vegu og velta á ýmsa kanta án þess að keyra hann upp aftur á milli. Hægt er að vista sama listann sem mismunandi sniðmát með mismunandi útlit, allt eftir þörfum hverju sinni.
Þátttakendur gera engar æfingar þessu námskeiði.
Fundarboð með hlekk á námskeiðið verður sent í tölvupósti við skráningu.
Skráningu á námskeiðið lýkur sunnudaginn 5.október 2025.
Skráningarskilmálar
Ef þú þarft að afskrá þig af námskeiðinu þá þarf að gera það minnst 24 tímum áður en námskeið hefst, annars þarf að greiða fyrir námskeiðið að fullu.
Afskráning verður að berast með tölvupósti á netfangið ardisb@origo.is. Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem upphaflega var skráður.
Origo áskilur sér rétt til að fella námskeiðið niður eða auglýsa aðra tímasetningu ef lágmarksþátttaka næst ekki.
Öll námskeið eða námskeiðahluta er hægt að sérpanta fyrir einstök fyrirtæki og stofnanir.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um sérsniðið námskeið skal senda tölvupóst á service@origo.is