Gagnadrifnar ákvarðanir
Mannauðsgögn sem segja sögu: Heildstæð nálgun með Kjarna og Moodup
Geta gögn hjálpað til við að skilja raunverulegar þarfir starfsfólks? Að nýta gögn úr bæði Kjarna og Moodup opnar á ný tækifæri. Hér skoðum við hvernig heildstæð nálgun á mannauðsmál getur umbreytt ákvarðantöku, aukið starfsánægju og styrkt fyrirtækjamenningu.

Velferð starfsfólks og heilbrigt starfsumhverfi eru lykilþættir í farsælum rekstri fyrirtækja. Fyrirtæki sem leggja áherslu á reglulegar starfsánægjumælingar og vinna markvisst með niðurstöðurnar geta skapað betri vinnustaðamenningu og aukið bæði vellíðan starfsfólks og skilvirkni í starfi.
Með því að greina gögn úr bæði Kjarna og Moodup opnast á ný tækifæri. Þessi heildstæða nálgun veitir stjórnendum dýpri innsýn í samspil starfsánægju og þróun mannauðsmála innan fyrirtækisins, sem gerir þeim kleift að greina mynstur, sjá orsakasamhengi og móta stefnu í mannauðsmálum sem byggir á traustum gögnum.
Tvær öflugar lausnir - óteljandi möguleikar
Kjarni er heildstætt mannauðs- og launakerfi sem hefur þjónað íslenskum fyrirtækjum í rúman áratug. Kerfið spannar allt frá ráðningum til starfsloka og veitir stjórnendum, mannauðs- og launadeildum skýra yfirsýn yfir öll mannauðsmál á einum stað.
Moodup hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem öflug hugbúnaðarlausn til að bæta starfsánægju og vinnustaðamenningu. Yfir 100 stærri fyrirtæki og stofnanir á Íslandi nýta sjálfvirkar púlsmælingar, sérsniðnar kannanir og stjórnendamöt Moodup til að efla vinnustaðamenningu og bæta starfsánægju.
En hvernig geta fyrirtæki nýtt sér þessi kerfi saman með sem bestum hætti? Hér skoðum við hvernig greining gagna úr Kjarna og Moodup getur veitt verðmæta innsýn í mannauðsmál og stuðlað að markvissari ákvarðanatöku.
Fjölbreytt tækifæri í gagnagreiningu
Með því að skoða gögn úr Kjarna og Moodup samhliða fá stjórnendur tækifæri til að greina þróun mannauðsmála á nýjan og dýpri hátt. Með gagnadrifinni nálgun er meðal annars hægt að:
Greina tengsl milli starfsánægju og launaþróunar. Er starfsánægja tengd því hversu miklar launahækkanir deildir fá? Hefur starfsmannavelta verið meiri í hópum sem hafa fengið minni hækkanir?
Skoða áhrif sveigjanlegs vinnutíma og fjarvinnu. Hvernig hefur sveigjanlegur vinnutími haft áhrif á starfsánægju? Er fylgni milli starfsánægju og deilda með háa tíðni í fjarvinnu?
Meta áhrif þjálfunar og fræðslu. Skilar fjárfesting í fræðslu sér í aukinni starfsánægju? Sjá fyrirtæki raunverulegan ávinning af fræðslu?
Greina mynstur í veikindadögum og yfirvinnu. Eru tengsl á milli mikillar yfirvinnu og upplifunar starfsfólks á álagi? Eru veikindadagar að aukast í ákveðnum deildum sem gefa neikvætt mat á stuðningi frá stjórnanda?
Með því að bera saman upplýsingar úr báðum kerfum fá stjórnendur dýpri innsýn í þá þætti sem hafa raunveruleg áhrif m.a. á starfsánægju, starfsmannaveltu og frammistöðu, sem auðveldar ákvarðanatöku.

Heildstæð nálgun
Fyrirtæki sem nýta bæði Moodup og Kjarna hafa einstakt tækifæri til að líta á mannauðsmál sem heildstætt viðfangsefni þar sem lykilþættir líkt og launamál, starfsþróun og starfsánægja eru hluti af sömu mynd. Með því að vinna með gögn úr báðum kerfum fá stjórnendur yfirsýn sem gerir þeim kleift að:
Setja upp áætlun sem tekur á rót vandans.
Taka upplýstar ákvarðanir sem styðja við langtímamarkmið fyrirtækisins.
Skapa vinnustaðamenningu sem laðar að og heldur í hæfileikaríkt starfsfólk.
Gagnadrifin nálgun í mannauðsmálum hefur umbreytandi áhrif. Með því að nýta gögn úr Kjarna og Moodup saman opnast á áður óséð tækifæri til að skilja hvað hefur raunveruleg áhrif.
Fyrirtæki sem nýta þessa möguleika til fulls geta betur þróað markvissa mannauðsstefnu og unnið að því að skapa jákvæða vinnustaðamenningu sem styður við bæði starfsfólk og rekstur til lengri tíma.