Nýjungar og framtíðarsýn Kjarna

Á notendaráðstefnu Kjarna, sem haldin var í síðasta mánuði, fóru Halla Árnadóttir, vöru- og teymisstjóri Kjarna, og Þorgerður Guðmundsdóttir, ráðgjafi í Kjarna, yfir nýjungar í Kjarna ásamt því að kynntur var vegvísir fyrir næstu ársfjórðunga.

12. júní 2025

Nýjungar í Kjarna

Á síðustu misserum hefur Kjarni stækkað ört og fjölmargar spennandi nýjungar hafa verið innleiddar. Hér stiklum við á stóru yfir það helsta sem hefur komið út á síðastliðnu ári.

Straumlínulagað ráðningarferli

Umsóknarvefur Kjarna leit dagsins ljós um það leyti sem notendaráðstefnan var haldin í fyrra og mikil vinna hefur farið í að þróa hann áfram í samráði við viðskiptavini okkar. Nýr og betri umsóknarvefur hefur gert ráðningarferlið straumlínulagaðra og aðgengilegra fyrir bæði umsækjendur og ráðningaraðila.

Snjallforrit Kjarna

Snjallforritið hefur fengið mikla athygli á árinu og höfum við bætt ört við virkni þess. Forritið gerir starfsfólki kleift að nálgast allar sínar upplýsingar á einum stað og léttir á álagi á mannauðs- og launadeildum.

Atriði til þægindarauka í launahluta

Við höfum gert ýmsar betrumbætur á launaáætlun:

  • Nú er hægt að festa skipurit svo starfsfólk sé ekki að færast til þegar gerðar eru breytingar eftir að áætlun er stofnuð.

  • Auðveldara er að stofna starfsfólk í áætlun.

  • Í samþykktarferli launabreytinga er nú hægt að gera launabreytingu fyrir þau sem eru í ákveðnum launaflokki og þrepi.

  • Áminningarvirkni fyrir samþykkt launa.

Öflugri auðkenning og öryggi

  • Innskráning með rafrænum skilríkjum fyrir Kjarnavef, starfsmannavef og snjallforrit Kjarna.

  • Stuðningur við rafrænar undirritanir með Taktikal og nýrri Dokobit vefþjónustu.

  • Forrit til að eyða öllum gögnum úr kerfinu í samræmi við persónuverndar- og bókhaldslög.

Tengingar og tækniframfarir

Við höfum styrkt tengingar Kjarna við önnur kerfi:

  • Tenging við nýja Eloomi fræðslukerfið.

  • Endurskrifuð og bætt Vinnustundartenging.

  • Samanburðarvirkni fyrir mat og skráningu á hæfni.

  • Vöruhús gagna fyrir Kjarna gerir það einfaldara og fljótlegra að vinna með mikið magn gagna.

  • Möguleiki er á að byggja skýrslur í Power BI og öðrum greiningartólum ofan á gagnavöruhúsið.

Hvað er framundan hjá Kjarna?

Annar ársfjórðungur 2025

Á öðrum ársfjórðungi 2025 verður lögð áhersla á betri tengingu við Moodup, en unnið er að því að bæta upplýsingum úr stjórnborði Moodup inn á Kjarnavef svo stjórnendur geti nálgast lykiltölur og farið beint inn í Moodup til að greina niðurstöður nánar.

Einnig verður kynntur nýr kerfishluti fyrir sjómannalaun sem gerir viðskiptavinum kleift að halda utan um veiðiferðir og reikna laun sjómanna með öllum tilheyrandi þáttum.

Snjallforritið verður bætt með ýmsum nýjungum, meðal annars yfirliti yfir nýtt starfsfólk á upphafssíðu. Þá munu nýjar Power BI skýrslur líta dagsins ljós, byggðar ofan á vöruhús gagna með möguleika á að draga fram mikilvægar upplýsingar ásamt viðbótarflokkun í Kjarna.

Rýnihópar verða settir á fót með það markmið að greina hvernig hægt sé að gera launavinnsluna sjálfvirkari, t.d. við stofnun og lokun útborgunar, bókun launa og sendingu skilagreina.

Rýnihópavinna til að bæta stjórnendasýnina á Kjarnavef verður einnig sett af stað. Þar sem sífellt meiri virkni er að færast á vefinn er þörf á að endurhugsa viðmótið til að gera það þægilegra og aðgengilegra fyrir stjórnendur.

Þriðji ársfjórðungur 2025

Á þriðja ársfjórðungi förum við í endurskrift á skilagreinavirkni til að gera hana aðgengilegri og skýrari. Einnig verður unnið að frekari tengingum milli Moodup og Kjarna sem mun gera notendum kleift að draga ályktanir út frá starfsánægju, veikindum, starfsmannaveltu og frammistöðusamtölum.

Viðverukerfið verður uppfært með vaktavirkni sem gerir notendum kleift að skrá starfsfólk á vaktir og rúlla út vöktum. Nýtt viðmót fyrir frammistöðumat, sem hannað var í samvinnu við rýnihópa, verður útfært. Þá verður tenging við Jira fullkláruð, sem gerir viðskiptavinum kleift að stofna viðeigandi beiðnir í Jira.

Til að auka aðgengi verða veikindaupplýsingar úr launahluta færðar á Kjarnavef.

Fjórði ársfjórðungur 2025

Við lok þessa árs mun ný útgáfa af bættu viðmóti fyrir stjórnendur líta dagsins ljós, byggð á niðurstöðum rýnihópa fyrr á árinu. Fyrstu skref í aukinni sjálfvirkni launahlutans verða einnig tekin, byggð á tillögum frá rýnihópavinnunni.

Viðhald skipurits verður fært á Kjarnavef með nýju myndrænu viðmóti. Ný virkni fyrir ráðningarbeiðnir verður innleidd, þar sem stjórnendur geta stofnað ráðningarbeiðnir sem, ef samþykktar, verða að auglýsingu. Einnig verður launaseðillinn endurhannaður til að uppfylla nútímakröfur og gera viðskiptavinum kleift að sérsníða hvaða upplýsingar birtast.

Fyrsti ársfjórðungur 2026

Þegar við horfum fram á árið 2026 er stefnt að því að færa virkni af starfsmannavefnum yfir á Kjarnavef. Viðverukerfið verður einnig bætt með möguleika á að stimpla sig inn á verk, sem kemur sérstaklega til móts við viðskiptavini með verkbókhald.

Áhersla verður lögð á að einfalda skil til Mælikvarða mannauðs og ESG skýrslu. Gátlistavirkni verður endurbætt með möguleika á að tengja verkefni við einstaklinga, ásamt útitsbreytingum og auknum sveigjanleika í sniðmátum. Að lokum verður launasamþykkt bætt við snjallforrit Kjarna svo stjórnendur geti samþykkt laun beint í símanum.

Ekki missa af fréttum frá Kjarna

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá reglulegar fréttir af nýjungum í Kjarna, greinar um mannauðsmál og upplýsingar um komandi viðburði.

Hafa samband

Opið virka daga frá kl. 9.00 – 16.00

Póstlisti Kjarna

Fáðu sendar upplýsingar um námskeið, viðburði og nýjungar í Kjarna.

Copyright 2025 @ Kjarni by Origo Group. All rights reserved.