Viðskiptagreind Kjarna

Ávinningur Arion banka af viðskiptagreind Kjarna

Linda Björk Árnadóttir, vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka, deilir reynslu sinni af viðskiptagreind Kjarna og lýsir því hvernig lausnin hefur aukið gagnaöryggi, tryggt áreiðanleika, sparað tíma og gert mannauðsgögn aðgengilegri fyrir alla hagsmunaaðila.

30. apríl 2025

Gögn skipta sífellt meira máli í ákvarðanatöku fyrirtækja. Viðskiptagreind Kjarna, sem byggir á Microsoft Power BI, hjálpar fyrirtækjum að vinna með mannauðsgögn á skilvirkan hátt. Lausnin auðveldar greiningu, tryggir samræmd gögn og dregur úr þörf á handvirkri skýrslugerð.

Mannauðsteymi Arion banka hóf að vinna með viðskiptagreind Kjarna árið 2021, en meiri aukning varð á notkun árið 2023 eftir að Linda Björk Árnadóttir, vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka, sótti námskeið í Power BI. Ein helsta áskorunin sem þau vildu leysa var að gera mannauðsgögn sýnilegri og aðgengilegri fyrir stjórnendur og starfsfólk mannauðsdeildar.

Við ræddum við Lindu um hvernig viðskiptagreind Kjarna hefur reynst mannauðsteymi Arion banka. Upp úr viðtalinu tókum við saman fimm lykilþætti sem varpa ljósi á helsta ávinning af viðskiptagreind Kjarna og hvernig fyrirtæki geta nýtt sér lausnina til að bæta ákvarðanatöku, spara tíma og tryggja áreiðanleika og notagildi gagna.

1. Samræmd gögn eru gulls ígildi

Hefur þú lent í því að tveir einstaklingar noti sömu gögnin en fái gjörólíkar niðurstöður? Þetta er algengt vandamál í fyrirtækjum þar sem gögn eru dreifð og mismunandi aðferðir nýttar við úrvinnslu þeirra.

Slíkt ósamræmi getur haft neikvæðar afleiðingar. Stjórnendur geta tekið rangar ákvarðanir byggðar á ónákvæmum upplýsingum, traust á gögnum innan fyrirtækisins veikist og óþarfa tími fer í að greina og útskýra mismunandi niðurstöður. Vandinn liggur oft í því að starfsfólk nálgast gögn á mismunandi hátt, notar ólíkar skilgreiningar og forsendur við úrvinnslu.

Power BI hjálpar okkur að skilgreina forsendur upp á gagnaöryggi og til að samræma gögn svo það sé ekki einhver misskilningur eða misræmi í gagnavinnslu. Mér finnst það mikilvægur þáttur í þessu.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Með viðskiptagreind Kjarna geta allir unnið út frá sömu forsendum og skilgreiningum. Gögn eru miðlæg og uppfærast sjálfkrafa sem tryggir áreiðanleika og samanburðarhæfni.

"Þegar ég geri mælaborð þá er ég yfirleitt með upplýsingar og skilgreindar forsendur á bakvið gögnin. Það er mjög mikilvægt. Þá fer ekkert á milli mála hvernig er verið að horfa á gögnin," útskýrir Linda.

Linda leggur einnig áherslu á það að hafa gögn á miðlægum stað: "Að dreifa upplýsingum og aðgangsstýra er mikill kostur með Power BI. Upplýsingaflæði verður margfalt skilvirkara og það er auðveldara að deila mælaborði í stað þess að senda Excel skjöl fram og til baka."

2. Myndræn framsetning auðveldar greiningu

Linda bendir á að stór ávinningur af viðskiptagreind Kjarna sé hvernig myndræn framsetning gerir flókin gögn aðgengilegri.

Gögn geta verið mjög flókin. Það sem Power BI býður upp á er þetta myndræna. Þessi myndræna sýn hjálpar rosalega mikið við að lesa úr gögnum og skilgreina þau.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Myndræn framsetning hjálpar til við að draga fram það mikilvægasta og auðveldar starfsfólki að átta sig á lykilatriðum. Margir nýta sér það að taka skjámyndir af mælaborðum þegar gögnin þurfa að vera hluti af kynningum eða þegar það þarf að deila þeim með öðrum. Þannig verður miðlun upplýsinga einföld og áhrifarík.

3. Bætt gagnaöryggi og gæði

Þegar unnið er með mannauðsgögn getur ein lítil villa haft umtalsverð áhrif á greiningar og ákvarðanir. Einn stærsti kosturinn við viðskiptagreind Kjarna að mati Lindu er aukið gagnaöryggi.

Með því að hafa gögnin í Power BI getur þú fylgst með hvort gögnin séu rétt. Það geta læðst inn villur. Þú ert fljótari að sjá ef það er eitthvað vitlaust í kerfinu.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Að vinna með skýrt skilgreindar forsendur á myndrænu mælaborði gerir mannauðsteyminu kleift að greina auðveldlega óeðlilegar sveiflur eða villur í gögnunum. Með skýrri yfirsýn verða gögnin áreiðanlegri og hreinni.

4. Tímasparnaður

Mannauðsteymi eru oft með mörg og fjölbreytt verkefni á sinni könnu. Handvirk skýrslugerð og gagnaöflun getur tekið óhóflega mikinn tíma - tíma sem betur mætti nýta í önnur verkefni.

Með viðskiptagreind Kjarna sparast mikill tími þar sem öll gögn eru alltaf aðgengileg á einum stað og uppfærast sjálfkrafa. Að safna saman gögnum úr dreifðum Excel skjölum og samræma upplýsingar var áður tímafrekt ferli, en með viðskiptagreind Kjarna eru þessi gögn nú aðgengileg á einum stað og uppfærast sjálfkrafa. Þetta er sérstaklega gagnlegt í reglubundnum verkefnum eins og ársskýrslugerð.

Það var mikil vinna hér áður fyrr, Excel skjöl hér og þar. Sem dæmi tölfræði fyrir ársskýrslu, nú er hægt að sækja gögnin í mælaborðið.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Tímasparnaðurinn kemur einnig fram í ýmsum öðrum verkefnum. Sem dæmi nefnir Linda að þegar skipuleggja þarf eitthvað tengt starfsfólki á ólíkum starfsstöðvum getur mannauðsfulltrúi einfaldlega farið í mælaborðið sem tengist beint við Kjarna og fengið nákvæmt yfirlit yfir dreifingu starfsfólks milli starfsstöðva. Þetta gerir skipulag mun einfaldara en áður þegar handvirkt þurfti að sækja, flokka og telja.

5. Þú þarft ekki að vera tæknisérfræðingur

Algengur misskilningur er að viðskiptagreind Kjarna krefjist djúprar tækniþekkingar, en að mati Lindu er það mikilvægasta að þekkja gögnin.

Maður þarf ekki að vera tækniséní. Það sem skiptir mestu máli er að þekkja gögnin. Þú veist hvað þú ert að fara að ná í, veist hvað þú vilt sjá. Svo kemur hitt bara, að læra á Power BI er eitthvað sem allir geta gert.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Linda náði tökum á kerfinu með því að sækja námskeið. Einnig getur verið gagnlegt að nýta úrræði eins og YouTube, samstarf við sérfræðinga og gervigreind.

Raunverulegt virði gagna

Reynsla Arion banka undirstrikar hvernig rétt nýting viðskiptagreindar getur skapað raunverulegt virði fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Með samræmdum og áreiðanlegum rauntímagögnum geta stjórnendur og starfsfólk tekið upplýstari ákvarðanir og sparað dýrmætan tíma.

Allir vinna með sömu gagnaupplýsingar úr Kjarna sem gerir stjórnendum og mannauðsdeild kleift að taka betri ákvarðanir, byggðar á traustum, samræmdum gögnum frekar en mismunandi útgáfum af skýrslum og forsendum.

Linda Björk Árnadóttir

Vörustjóri mannauðslausna hjá Arion banka

Vilt þú vita meira um viðskiptagreind Kjarna?

Hafa samband

Opið virka daga frá kl. 9.00 – 16.00

Póstlisti Kjarna

Fáðu sendar upplýsingar um námskeið, viðburði og nýjungar í Kjarna.

Copyright 2025 @ Kjarni by Origo Group. All rights reserved.