Einfaldari verkferlar og betra yfirlit í maí útgáfu Kjarna
Fjölmargar spennandi nýjungar líta dagsins ljós í maí útgáfu Kjarna, þar á meðal aukin tenging milli Kjarna og Moodup, yfirlit yfir nýtt starfsfólk í snjallforriti og fjölbreyttar viðbætur við ráðningar-, viðveru- og launahluta Kjarna. Þessar endurbætur eru sérstaklega hannaðar til að einfalda verkferla, spara tíma og auka yfirsýn í daglegum störfum.

Aukið upplýsingaflæði með frekari tengingu Kjarna og Moodup
Við hjá Kjarna viljum gera gagnavinnslu og upplýsingaflæði sem skilvirkast fyrir stjórnendur. Í nýjustu útgáfunni höfum við því bætt frekar við tengingu Kjarna og Moodup.

Nú geta stjórnendur nálgast lykilniðurstöður úr Moodup beint undir Teymið mitt á Kjarnavef. Þetta veitir stjórnendum auðveldan og skjótan aðgang að mikilvægum upplýsingum um starfsánægju og líðan starfsfólks.
Fyrir þau sem vilja kafa dýpra í gögnin er einfalt að fara beint úr Moodup út frá Kjarnavef fyrir ítarlegri greiningu.
Tökum vel á móti nýju starfsfólki
Í maí útgáfunni kynnum við nýja virkni í snjallforriti Kjarna sem gerir fyrirtækjum kleift að birta yfirlit yfir nýtt starfsfólk á upphafssíðu forritsins. Þetta yfirlit virkar svipað og yfirlitið yfir afmælisbörn dagsins sem margir viðskiptavinir okkar þekkja vel og nýta sér.
Nýtt starfsfólk birtist á fyrsta starfsdegi sínum og er sýnilegt í heila viku, sem veitir samstarfsfólki tækifæri til að kynnast því og bjóða þau velkomin. Þetta er einföld en áhrifarík leið til að láta samstarfsfólk vita af nýliðum innan fyrirtækisins og stuðlar að betri móttöku nýliða.

Minni handavinna og meiri nákvæmni í ráðningar- og "onboarding" ferlinu
Við höfum gert umtalsverðar endurbætur á ráðningarferlinu í Kjarna.
Meiri sveigjanleiki
Nú er hægt að tengja stöðu við formið sem notað er til að óska eftir gögnum frá umsækjendum. Þetta hefur í för með sér:
Einföldun fyrir umsækjendur: Umsækjendum stendur aðeins til boða að velja úr þeim lífeyrissjóðum og stéttarfélögum sem eiga við viðkomandi starf, sem flýtir fyrir og einfaldar umsóknarferlið.
Meiri nákvæmni: Virknin skilar sér í ráðningarferlið þar sem ráðningaraðilar geta aðeins valið úr þessum sama lista.
Samræmi gegnum allt ferlið: Þessi sama virkni skilar sér einnig inn í ráðningarsamninginn, sem tryggir samræmi milli allra skrefa í ferlinu.
Fyrir einstaklinga undir 16 ára aldri, sem greiða ekki staðgreiðslu eða í lífeyrissjóð, er nú hægt að óvirkja þær upplýsingar þegar óskað er eftir gögnum svo ekki sé verið að óska eftir gögnum sem eiga ekki við.
Þessu til viðbótar er nú hægt að fela ákveðin svæði þegar óskað er eftir gögnum ef viðskiptavinir vilja ekki að ráðningaraðilar séu að spyrja að öllum þeim upplýsingum sem í boði eru.
Fjölbreyttir valmöguleikar
Til að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina höfum við bætt við fjölbreyttari valmöguleikum í ráðningarferlinu:
Aðgengi að öllum svörum: Öll svör umsækjenda úr Óska eftir gögnum eru nú gerð aðgengileg í ráðningarferlinu um leið og þau berast, sem tryggir að allar upplýsingar séu tiltækar á einum stað.
Stytting ráðningarferils: Nú er hægt að stytta ráðningarferilinn þannig að skref sem innihalda launaupplýsingar birtast ekki ráðningaraðilum. Þetta er hentugt fyrir fyrirtæki þar sem launadeild sér um að klára skráningu launaupplýsinga eftir á.
Betrumbætt tilfærsla: Við tilfærslu starfsfólks er nú hægt að breyta ráðningarmerkinu og/eða tegund ráðningar, og kerfið hunsar sjálfkrafa persónuafslátt.

Aðrar viðbætur við ráðningarferlið
Bætt hefur verið við möguleika á að skrá:
Ástæðu ráðningarmerkingar.
Merkingu fyrir Kjarna viðveru.
Hvort starfsmaður skuli undanskilinn úr Moodup.
Hvort starfsmaður skuli undanskilinn úr Active Directory.
Ýmsar viðbætur til þægindarauka í viðveru
Viðverukerfi Kjarna hefur fengið fjölmargar uppfærslur sem miða að því að auðvelda bæði starfsfólki og stjórnendum daglega notkun kerfisins.
Einfaldari leiðrétting á stimplunum: Ef starfsfólk gleymir að stimpla sig inn getur það nú skráð sig inn án þess að þurfa samtímis að skrá út tímann.
Dagsyfirlit í snjallforritinu: Starfsfólk getur nú í snjallforriti Kjarna séð vinnuskyldu miðað við daginn í dag, ekki bara vinnuskyldu fyrir allt tímabilið. Þetta er þægilegt fyrir starfsfólk til að fylgjast með hvort það hafi uppfyllt vinnuskylduna til dagsins í dag.
Sjálfgefinn samþykkjandi orlofsbeiðna: Tímastjóri kemur nú sjálfgefið sem samþykkjandi orlofsbeiðnar, en hægt er að velja næsta yfirmann í stað hans ef það hentar betur.
Sjálfvirkar áminningar: Hægt er að senda sjálfvirkar áminningar til að minna starfsfólk á að staðfesta tímana sína.
Einfaldari flutningur í laun: Nú er hægt að flytja allar færslur í laun án þess að þurfa að velja Sjá sem fyrir hvern og einn aðila.
Endurbætt yfirlit tímaskráninga: Bætt hefur verið inn endurbættu yfirliti tímaskráninga sem er aðgengilegt þegar farið er í að flytja tíma yfir í laun.

Bætt notendaupplifun í launum
Betri sýn á launatöflur: Möguleiki er nú á að fela áætlunarlaunatöflur svo sjálfgefið birtast bara almennar launatöflur. Hægt er að kalla áætlunartöflurnar aftur fram þegar þess gerist þörf, sem gerir skjámynd launafulltrúa þægilegri og hnitmiðaðri.
Uppbætur fyrir alla í einu: Ef unnið er með starfsfólk í tímavinnu með mismunandi vinnutíma og þar af leiðandi mismunandi deilitölur uppbóta er nú hægt að breyta formúlunni þannig að hægt sé að vinna uppbætur fyrir alla í einu út frá þeim deilitölum sem við á.
Lífaldursmiðuð orlofshækkun: Í hækkunarreglum orlofs er nú hægt að skilgreina hækkun miðað við lífaldur, en áður var bara hægt að skilgreina slíkar hækkanir fyrir starfsaldur.
Vistun á fyrirtækjalistum: Hægt er að stofna möppur og vista niður útlit fyrirtækjalista á Kjarnavef. Þetta er hentugt til að eiga ákveðin sniðmát tilbúin sem hægt er að kalla fram eftir þörfum.

Flokkanir til að auðvelda skýrslugjöf
Þar sem gögn eru mismunandi hjá viðskiptavinum hefur verið bætt inn flokkunum til að auðvelda samræmda úttekt gagna í stöðluðum Power BI skýrslum ofan á gagnavöruhús Kjarna.
Þetta er annars vegar flokkun á launaliði þar sem hægt er að flokka hvort viðkomandi launaliður á að teljast til grunnlauna, orlofs eða veikinda, og hins vegar flokkun á stöðu sem segir til um hvort viðkomandi staða sé stjórnendastaða og þá hvort hún sé með eða án mannaforráða.
Aðrar viðbætur
Bætt hefur verið við svæðinu Önnur kennitala. Þetta er hentugt þegar haldið er utan um upplýsingar erlends starfsfólks.
Þar sem það er sífellt algengara að einstaklingur breyti um nafn þá hefur þeirri virkni verið bætt inn í þjóðskrártenginguna í Kjarna að hún geti uppfært nafn. Frá upphafi hefur tengingin uppfært lögheimili og síðar kyn, en nú hefur uppfærsla á nafni bæst við tenginguna.
Vinnutímaspjaldi hefur verið bætt við yfirlit starfsmanns sem er aðgengilegt úr Starfsmannalista og úr Teymið mitt.